Ég er víst búin að fá skammir frá henni Flugstöðvar-Erlu um að
ég bloggi ekki nóg. Þannig að ég ákvað að laga það hjá mér.
Síðustu daga fyrir jól er búið að vera crazy að gera hjá mér í
vinnunni. Auðvitað vilja allir gott kaffi frá Kaffitári eftir
jólasteikina.
Jólin voru pínu skrítin en yndisleg samt. Við vorum heima þetta
árið og Doddi þurfti að vinna til rúmlega 19:00 þannig að þegar
jólin hringdu inn kl 18:00 þá var Óðinn sofandi og Doddi að vinna
þannig að ég stóð ein við eldavélina á meðan kirkjuklukkurnar
hringdu inn jólin. Þetta var svoldið skrítið
En jólin eru búin að vera át og svefn og dvd. Sitjandi í sófanum
með nýju sængina, í nýju náttfötunum með kjötbita í annari
hendinni og jólaöl í könnu í hinni hendinni , Óðinn að leika
sér með nýja dótið og Doddi að glápa á DVD. Svona eiga jólin að
vera.
En nú líður að áramótum og þá er ég sko í essinu mínu.
Bæklingarnir hringja inn um lúguna með rakettu auglýsingum og
þá byrja ég að iða. ÉG ELSKA RAKETTUR!!!!
Ég get ekki beðið
eftir að fara að kaupa rakettur......
En þar til næst..
Kaffikerling kveður.